Það leit ekki vel út með flugeldasýninguna þegar klukkan var um 21:00 um kvöldið því það var þá nokkurt rok og töluverð úrkoma en þegar leið á kvöldið rofaði til og lægði vind og þegar kom að flugeldasýningunni þá var komið þetta fína veður.
Þetta var mjög flott flugeldasýning og ég er á því að þær gerist vart betri....
Við lærum í hvert sinn sem við tökum myndir af flugeldum og vonandi náum við tökum á þessu þó síðar verði.